Donald Trump sums it up!
Veðrið
Úff það er aftur orðið kalt í veðri hér í París þó að við höfum fengið smá snefil af sumri í síðustu viku þegar hitinn fór upp í um 18°. Núna er hitastigið dottið niður í um 2° og því orðið aðeins erfiðara að mana sig upp á morgnanna. Ég veit svo sem að fólk á Íslandi hugsar núna: “hvað ert þú að kvarta?” þar sem í dag er hitastigið vel undir frostmarki í Reykjavík.Það er bara ansi erfitt að fara strax aftur inn í veturinn eftir ansi stutt presumar. Ég er farinn aftur í dvala.
Skrifað í Almennt blogg
Ljósmyndir
Mjög skemmtilegt ljósmyndaverk á ferð:
Skrifað í Listir
Bobby Fischer
Fann hérna eitt skemmtilegt video frá komu Bobby Fischer’s til Íslands árið 1972.
Skrifað í Video
Ennþá veikur!
Maður er bara búinn að liggja upp í rúmi þessa helgi ekkert. Fór til læknis á föstudaginn í skoðun en hann skoðaði á mér allan líkaman og tók t.a.m. myndir af lungunum mínum sem komu bara vel út. Var búinn að vera fá hita við og við undanfarna daga og að lokum fékk ég frekar svakalegt hitakast á föstudaginn þannig ég ákvað að láta athuga mig. Er núna á sýklalyfjum og verð á þeim út þessa viku en býst nú alveg við því að fara í skólann á morgun. Það er búið að vera bara ágætt að slappa af heima þessa helgi þó að ég sé að verða dálítið þreyttur á inniveruni…. í París er það samt eiginlega eina leiðin til að spara pening því freistingarnar hérna eru svo ansi margar. Maður hugsar alltaf meira um hvað maður gæti verið að gera ef maður væri frískur….. t.d. að fara á Palais de Tokyo safnið, David Lynch exhibitionið, fá sér ís, fá sér kaffi…… fá sér bjór. En allavega það kemur að því.
Annars fékk ég bréf frá stelpu sem heitir Jennifer og ég þekkti í Flórens og hef ekki hitt síðan 2004 að ég held. Hún er að koma í heimsókn til Parísar næstu helgi og það verður gaman að hitta hana aftur!
Mig dreymdi líka magnaðan draum í nótt og þegar ég vaknaði um kl. 6 eða 7 hugsaði ég að ég yrði að fara fram úr rúminu og skrifa hann niður. En ég var svo rosalega þreyttur að ég ákvað að sofa aðeins lengur og skrifa hann niður seinna. Síðan vaknaði ég um 10-11 leytið og draumurinn var aðeins minna magnaðri en kl. 6-7…. kannski hafði hann fjarað e-ð út því ég var alveg viss um tíma að þessi draumur gæti orðið að góðri bók!
Skrifað í Almennt blogg
Veikur
Úff er lasinn sem stendur. Blogga meira þegar ég hressist
Skrifað í Almennt blogg
Draumar
Í nótt dreymdi mig að ég væri í partýi heima hjá Hauki og Arnari frændum mínum í þeirra foreldrahúsum. Þeir eru nú reyndar báðir löngufluttir að heiman. Þar var staddur tónlistarmaðurinn Damien Rice og tók hann upp á því að glamra á gítarinn minn sem endaði nú þannig að í lok “sessions” var gítarinn mölbrotinn og ég vissi ekki hvernig ég átti að bera mig að honum til þessa að láta hann endurgreiða mér gítarinn. Ég byrjaði á því að labba í átt til hans.
Ég: Hæ… já hvernig virkarði gítarinn?
Damien Rice: Ah er þetta þinn gítar…. ekki hafa áhyggjur ég ætlaði að borga hann.
Ég: Nei allt í góðu sko….
Damien Rice fer í vasann sinn og tekur upp fjóra miða.
Damien Rice: Hérna eru miðar á tónleika hjá mér það ætti að covera gítarinn.
Ég: Já …. takk.
Ég leit á miðana og sá að þetta voru miðar á tónleika hans í París sem eru núna á næstunni en seldust upp strax. Þannig að ég varð mjög glaður með þetta. Ég tók í höndina á honum og kom miðunum fyrir í skúffu.
Daginn eftir þá ætlaði ég að ná í miðana og gefa þremur einstaklingum sem eru með mér hérna í skólanum en þá voru miðarnir horfnir og búið að rispa einhver orð á skúffuna með hnífi…. bömmer!
Annars er ég að fara á stuttmyndahátíð í kvöld sem er haldin af nemanda í skólanum og fer hún fram á barnum. Það hefur stundum verið gaman að fara þangað og hitta fólk yfir drykk sem maður hittir annars ekki. En verð í bandi síðar.
Skrifað í Draumar og Martraðir
Nýtt blogg!
Jæja gott fólk þá er komið að fjórðu tilraun til þess að leyfa fólki að fylgjast betur með mér í útlandinu. Hér er búið að vera mjög gott að vera síðan ég fór frá Íslandi í byrjun janúar. Núna er líka komið svona íslenskt sumarveður þannig að dvölin er orðin enn betri.
Annars er helst í fréttum að ég var að ljúka tökum á myndinni minni(á reyndar eitt skot eftir) og verður hún vonandi tilbúin í Apríl en þá kem ég heim og væri vel til í að sýna ykkur vinum hana yfir nokkrum bjórum en ég ætla ekkert að vera tala mikið um hana fyrr en hún er fullbúin. Annars leik ég aðalhlutverkið í myndinni sjálfur og er að því tilefni orðinn stutthærður á ný og skegglaus eins og myndin sýnir.

Annars er planið núna að fara að vinna að næstu mynd. Á fyrsta fund um hana á morgun með leikstjórnarkennaranum mínum en ég er ekki búinn að skrifa handritið að henni ennþá. Vonandi tekst það vel en ég er að hugsa um að leika ekki í henni að þessu sinni því það var ansi erfitt að leikstýra því sem maður í rauninni sá ekki fyrr en eftir á.
En annars verður þetta stutt í dag en meira vonandi á morgun. Þangað til næst!
Biggi
Skrifað í Almennt blogg
