Jæja dömur og herrar, þá er skólinn byrjaður hjá mér aftur og allt komið á fullt. Það hafa heldur betur orðið breytingar á skólanum hjá mér og búið að skipta hreinlega um stjórn alþjóðlegudeildarinnar. Það er búið að vera mikið uppnám vegna þessara breytinga hjá fólki í skólanum en núna þegar fyrsta vikan er búin þá virðast þessar breytingar vera til batnaðar. Ég er allavega mjög sáttur við þá kennara sem ég er með í ár og allt virðist stefna í gott ár.
Á föstudaginn síðastliðinn sýndi ég fyrsta “cut” af myndinni minni Shower. Myndin sem fjallar um heimsókn karlmanns til karlstrippara var almennt vel tekið en ég þarf þó að gera á henni ýmsar breytingar t.d. fínpússa klippingar, laga hljóð og litblanda. Þetta er búið að vera mjög áhugavert verkefni hingað til enda var þessi mynd gerð án handrits. Hún verður svo frumsýnd í nóvember.
Næstkomandi fimmtudag held ég ásamt bekkjarfélaga mínum, Paul Natale (sjá mynd neðar á síðunni), til Pisek í Tékklandi en þar fer fram kvikmyndahátíð þar sem mynd Pauls verður sýnd. Ég sá um leikmyndahönnunina og leikmuni í myndinni og það verður virkilega gaman að sjá hvernig fólk tekur í myndina. Við munum fljúga til Prague og verðum sóttir á flugvöllinn af einhverjum að aðstandendum hátíðarinnar og keyrum svo um eina og hálfa klukkustund til Pisek. Á milli sýninga munum við svo fá tækifæri til að fara á ýmis námskeið að mér skilst og mun sunnudagurinn fara í að skoða Prague. Síðan fljúgum við til Parísar á mánudaginn.
Annars er bara allt gott að frétta héðan
.