Posted by: biggip | júní 3, 2007

Úr sturtunni

soap.jpg
Þessi gleymdi nú alveg að skola sig.
Jæja þá var maður að koma úr sturtu. Rútínan hjá mér er venjulega sú að þegar ég er búinn í sturtu þurrka ég mér, spreyja á mig svitalyktaeyði, hengi handklæðið upp og fer í nærbuxur. Síðan sest ég niður við tölvuna í svona 10 mínútur og slappa aðeins af meðan þorna alveg. Ég er nú ekkert vanur að vera að drífa mig að þessari athöfn enda gerist þetta venjulega á morgnanna en núna brá ég mér aðeins út af vananum og fór í sturtu rétt fyrir svefninn. Fór ég að eins og venjan er og sat á nærbuxunum við tölvuna meðan ég las fréttir og. flr en þegar ég þurfti svo að teygja úr handarkrikanum þá strekktust öll hárin undir honum eins og þau væru að rifna af og þegar betur var að gáð hafði ég gleymt að skola sápuna af þar undir. Þetta var frekar skrítið því sápan var orðin hörð undir höndunum væntanlega af mixtúrunni við svitalyktaeyðinn….. svona geta nú hlutirnir gerst!


Responses

  1. Jæja, biggi. Þetta eru aldeilis stórtíðindi. Muna að skola sig vel.

  2. heyhó biggi! geturðu nokkuð sent mér tölvupóstfangið þitt og steinþórs?


Leave a response

Your response:

Flokkar