Posted by: biggip | júní 2, 2007

Veikur enn og aftur!

sick.jpgKallað var á töfralækni en því miður hjálpaði það ekkiJæja þá hef ég orðið veikur enn og aftur. Veikindin byrjuðu á þriðjudaginn þannig að ég er búinn að vera í rúminu í fjóra daga og núna er ég að verða geðveikur af leiðindum. Ég er búinn að horfa á alltof margar bíómyndir og skoða alltof margar heimasíður í þessa fjóra daga.Síðan er ég búinn að borða svakalega mikuð (kjúkling, pirates of the carribean pönnukökur, brauð og pizzur) og drekka alveg rosalega mikið (sérstaklega te og kaffi) en mér finnst ég bara vera að léttast ef e-ð er….. skrítið. Ég man þegar maður var lítill þá tók maður oft veikindum fagnandi því að þá þurfti maður ekki að fara í skólann en núna er ekkert leiðinlegra. En jæja ég nenni ekki að halda áfram þessu væli.Ég horfði aftur á myndina Tillsammans um daginn og mér fannst hún svo miklu skemmtilegri en ég hafði upphaflega munað. Sérstaklega kannski í ljósi þess að ég sá stuttmyndina “Bara prata lite” (e. “Talk”) sem er einnig eftir Lukas Moodyson en hún fjallar einmitt um Birger Anderson sem kemur einmitt fyrir myndinni Tillsammans. Hvet alla til að sjá báðar þessar myndir sem ekki hafa séð.bújakaza


Responses

  1. Ég man þegar ég fór í bíó á Tilsammans, sem er eina skiptið sem ég hef séð hana, og mér fannst hún frábær. Varst þú nokkuð með mér í bíó? Allavega sá sem var með mér fannst hún ekkert spes. Hina myndina hef ég ekki séð.

    En annars, í hvers konar pestarbæli býrðu drengur? Þú ert alltaf veikur. Krakkarnir í hverfinu fara bráðum að uppnefna þig veika manninn með marblettinn.

  2. Nei ég fór reyndar ekki með þér á tillsammans. Sá hana á vídjó heima einhvern tíman um árið. En kjötbúðin fyrir neðan gæti kannski verið ástæðan. Alltaf rottnunarlykt hérna í stigaganginum…. síðan gæti náttúrulega drykkja líka verið ástæðan :)


Leave a response

Your response:

Flokkar