Posted by: biggip | maí 3, 2007

Ég, Mark Wahlberg og Dustin Hoffman!

dustin_hoffman7.jpgÍ nótt dreymdi mig skemmtilegan draum. Ég var mættur á e-ð kaffihús til þess að hitta leikaran Mark Wahlberg sem ætlaði að segja mér frá kvikmyndaferli sínum og reyna að kenna mér e-ð í sambandi við samskipti leikara og leikstjóra. Við hittumst á einhverju kaffihúsi sem er ekki til í raunveruleikanum en þetta kaffihús var riiisastórt á tveimur hæðum. Ég labbaði inn á kaffihúsið og sá engan Mark þar þannig að ég settist niður og beið. Þá kom hann Önundur upp að mér og spurði hvað ég væri að gera þarna. Ég hvíslaði til hans að ég væri að fara hitta Mark Wahlberg og þyrfti að hafa augun opin þar sem hann vissi ekki hver ég væri. Þá benti Önundur á svalir efri hæðarinnar og sagði mér að þarna væri Mark Wahlberg. Þar stóð hann með tvo – þrjá lífverði og ég labbaði upp stigan til móts við hann. Við heilsuðumst innilega og kynntum okkar og þá var síðan ákveðið að fá sér bjór og fara upp í sérherbergi til þess að tala saman en þar var einnig pool-borð. Þegar upp var komið og við vorum búnir að ég nokkur orðskipti birtist Dustin Hoffman. Eftir stutt samtal við þá báða ákváðum við svo að endurgera nokkur atriði úr myndinni I heart Huckabees eftir uppástungu Dustin Hoffmans. Við byrjuðum skutum fram eftir draumnum og þannig var nú það.


Responses

  1. Jahá!
    Ef ég hefði ekki verið á staðnum hefðir þú algerlega farið á mis við Mark Wahlberg. En það hefði auðvitað verið herfilegt.

  2. Jæja, félagi, er ekki kominn tími á nýja færslu á þessu tíðindalitla bloggsvæði?


Leave a response

Your response:

Flokkar