Jæja gott fólk þá er Íslandsför minni lokið og ég er búinn að vera um 10 daga í París og lífið er komið í svona sama farveg og það var. Ég fór beint að vinna að myndinni hans Paul Natales (sem er á mynd hér að neðan) sem heitir “Cassie”. Mitt verk fyrir þá mynd var að vera sviðsmyndahönnuður og að sjá um props.Annars náði ég að að gera allt sem er á listanum hérna að neðan nema að borða kjötbollur en ég borðaði þó fiskibollur og tók með mér eina dós sem ég gerði í gær
Næst á dagskrá hjá mér er að gera eina stutta mynd á sunnudag og ég mun reyna að pósta henni hérna á netið fyrir ykkur því hún þarf voða litla eftirvinnslu og þess vegna ætti ekki að vefjast fyrir manni að henda henni upp. Síðan er ég núna að reyna leggja loka hönd á myndina sem ég gerði um daginn en hún verður víst um 15 mín.lates peeps!
Posted by: biggip | maí 1, 2007
Bújakaza!
Skrifað í Skólinn