Úff ég er búinn að vera brjálað upptekinn að undanförnu. Er búinn að leikstýra tveim æfingum (annari á 16mm filmu) og er að fara leikstýra aftur á morgun (Vantaði eitt aukaatriði í myndina mína). Síðan er ég líka að klippa tvær myndir og er að huga að eftirvinnslu að minni eigin mynd. Síðan er ég náttúrulega alltaf að skrifa handrit þannig að ég held að ég sé að verða geðveikur núna en það er farið að lægja aðeins á stressinu enda er ég að koma til Íslands á fimmtudag eins og flestir ættu að vita. Það sem mig hlakkar mest til að gera á Íslandi fyrir utan það að hitta allt fólkið er að:- Fara í langar heitar sturtur og böð.- Drekka íslenskt kranavatn.- Borða harðfisk.- Borða kjöt- og fiskbollur.Og auðvitað margt fleira.En hvað um það.Meira seinna.