Posted by: biggip | mars 12, 2007

Nýtt blogg!

Jæja gott fólk þá er komið að fjórðu tilraun til þess að leyfa fólki að fylgjast betur með mér í útlandinu. Hér er búið að vera mjög gott að vera síðan ég fór frá Íslandi í byrjun janúar. Núna er líka komið svona íslenskt sumarveður þannig að dvölin er orðin enn betri.

Annars er helst í fréttum að ég var að ljúka tökum á myndinni minni(á reyndar eitt skot eftir) og verður hún vonandi tilbúin í Apríl en þá kem ég heim og væri vel til í að sýna ykkur vinum hana yfir nokkrum bjórum en ég ætla ekkert að vera tala mikið um hana fyrr en hún er fullbúin. Annars leik ég aðalhlutverkið í myndinni sjálfur og er að því tilefni orðinn stutthærður á ný og skegglaus eins og myndin sýnir.

photo-6.jpg

Annars er planið núna að fara að vinna að næstu mynd. Á fyrsta fund um hana á morgun með leikstjórnarkennaranum mínum en ég er ekki búinn að skrifa handritið að henni ennþá. Vonandi tekst það vel en ég er að hugsa um að leika ekki í henni að þessu sinni því það var ansi erfitt að leikstýra því sem maður í rauninni sá ekki fyrr en eftir á.

En annars verður þetta stutt í dag en meira vonandi á morgun. Þangað til næst!
Biggi


Responses

  1. Flottur! Hlakka til að sjá ræmuna.

  2. Gaman gaman, en verður þetta langlífara blogg en hin fyrri? Það er kannski ómögulegt fyrir þig að spá fyrir um það en telurðu þig hafa metnaðinn í að halda uppi góðu bloggi til lengri tíma, Birgir Pétur? Þú getur þetta, ég trúi á þig.

    p.s.

    Ég hlakka til að sjá myndina.

  3. Gæti vel farið svo…. látum okkur sjá hmm!


Leave a response

Your response:

Flokkar